Hraunbúðir
Hjúkrunar- og dvalarheimilið Hraunbúðir var tekið í notkun 1974. Ríkið ráðstafar Hraunbúðum heimild til að reka þar ákveðinn fjölda hjúkrunar- og dvalarrýma auk fjárheimilda til rekstursins. Rekstur heimilisins fór yfir til Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSU) 1. maí 2021. Heimild er fyrir 32 hjúkrunarrýmum, 2 dvalarrýmum og einu hvíldarrými.
Hjúkrunarrými eru fyrir þá sem þurfa mikla umönnun en dvalarrými fyrir þá sem þurfa minni umönnun. Á heimilinu starfa hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar auk ófaglærðs starfsfólks. Læknir kemur reglulega og þjónustar heimilismenn.
Fullkomið eldhús er á Heilbrigðisstofnun Suðurlands og þaðan kemur allur matur sem framreiddur er í matsal Hraunbúða.
Fjölbreytt tómstundastarf er á Hraunbúðum, s.s vikulegur upplestur, mánaðarlegar myndasýningar, boccia, heimsóknir leikskólabarna, söngstundir og ýmsar vikulegar uppákomur. Einnig er leikfimi og heitir bakstrar hjá íþróttakennara alla virka daga.
Til að komast á biðlista eftir hjúkrunar- og dvalarrými þarf að sækja um til færni- og heilsumatsnefndar Suðurlands.
Sótt er um með því að senda umsókn á Færni- og heilsumatsnefnd, eyðublaðið má finna á heimasíðu landlæknisembættisins.
Ekki er heimild til að taka einstakling inn á Hraunbúðir nema með samþykki færni- og heilsumatsnefndar. Í Vestmannaeyjum eru að auki heimild frá ríkinu fyrir 7 hjúkrunarrýmum á Heilbrigðisstofnun suðurlands (HSU) til viðbótar við þau 32 sem eru á Hraunbúðum. Inntaka á þau rými eru háð sömu skilyrðum og nefnd eru hér að framan.
Eyðublöð má nálgast á www.landlaeknir.is , eða á heimasíðu HSU