Staðan er til afleysinga vegna fæðingarorlofs, frá 1. febrúar – 10. maí. Starfshlutfall er 90%, með sveigjanlegum vinnutíma (á tímabilinu 09:00 - 16:30).
Markmið starfsins er að bjóða upp á öruggt og fjölbreytt eftirskólaúrræði.
Háskólamenntun í uppeldisfræðum eða sambærilegu námi er æskileg sem og reynsla af stjórnun. Reynsla af starfi með börnum er mikilvæg.
Viðkomandi þarf að vera metnaðarfullur, ábyrgur, áhugasamur, lipur í samskiptum og tilbúinn í samstarf með velferð og þroska nemenda að leiðarljósi.
Viðkomandi þarf að hafa hreint sakavottorð.
Helstu verkefni
|
Umsóknarfrestur er til 18. janúar nk.
Umsóknir skulu berast með rafrænum hætti í gegnum heimasíðu Vestmannaeyjabæjar eða með tölvupósti á annaros@grv.is.
Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og leyfisbréf auk kynningarbréfs þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni í starfið.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Stavey.
Hvatning er til allra áhugasamra einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 15/2020.
Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningu.
Nánari starfslýsingu og upplýsingar má nálgast hjá forstöðumanni Antoni Erni Björnssyni í síma 481 2964 / 868 8769 eða í tölvupósti anton@vestmannaeyjar.is
