Fara í efni
28.07.2026 Fréttir

Vöruhúsið tekur við matarþjónustu fyrir eldri borgara

Deildu

Vestmannaeyjabær hefur lokið lögbundnu útboði á matarþjónustu fyrir eldri borgara. Samkvæmt reglum um opinber innkaup var sveitarfélaginu skylt að bjóða þjónustuna út þegar gildandi samningur rann sitt skeið.

Við útboðið barst eitt tilboð, frá Vöruhúsinu, sem uppfyllti skilyrði útboðsgagna og var því samþykkt. Vöruhúsið mun því annast matarþjónustu fyrir eldri borgara á samningstímanum og var samningur þess efnis undirritaður af Antoni Erni Eggertssyni fyrir hönd Vöruhússins og Írisi Róbertsdóttur, bæjarstjóra fyrir hönd Vestmannaeyjabæjar.

Fram til þessa hefur veitingastaðurinn Gott sinnt þessari þjónustu. Af þessu tilefni vill Vestmannaeyjabær færa veitingastaðnum Gott innilegar þakkir fyrir afar gott og farsælt samstarf undanfarin ár. Starfsfólk Gott hefur sinnt matarþjónustunni af fagmennsku, alúð og metnaði og lagt sitt af mörkum til að tryggja eldri borgurum bæjarins góða og áreiðanlega þjónustu. Fyrir það er bæjarfélagið afar þakklátt.

Vestmannaeyjabær býður Vöruhúsið velkomið til samstarfs og hlakkar til að vinna með fyrirtækinu að því mikilvæga verkefni að veita eldri borgurum áfram góða, örugga og vandaða þjónustu.