Fara í efni
06.11.2026 Fréttir

Vinna við atvinnustefnu Vestmannaeyjabæjar í fullum gangi

Deildu
default

Vinna við mótun atvinnustefnu Vestmannaeyjabæjar hefur gengið vel. Á undanförnum mánuðum hafa verið haldnir fundir með helstu hagsmunaaðilum, efnt til íbúaþings og íbúum boðið að taka þátt í rafrænni könnun.
Nú er unnið að úrvinnslu þeirra gagna og sjónarmiða sem fram komu í ferlinu.

Vestmannaeyjabær vill þakka öllum sem tóku þátt í fundum og könnun fyrir sitt framlag. Fram hafa komið verðmæt sjónarmið og gagnlegar ábendingar sem munu nýtast vel við áframhaldandi mótun atvinnustefnunnar.
Þegar úrvinnslu lýkur verður unnið áfram að gerð stefnunnar.

Drífa Gunnarsdóttir, Sviðsstjóri Stjórnsýslu- og fjármálasviðs segir vinnuna hafa gengið vel og viljum við þakka öllum sem hafa tekið þátt í fundum og könnun fyrir sitt framlag.
Þar komu fram verðmæt sjónarmið og gagnlegar ábendingar sem munu nýtast vel við áframhaldandi mótun stefnunnar.