Fara í efni
13.10.2026 Fréttir

Vinna á skipulagsdegi hjá Leikskólanum Kirkjugerði

Leikskólinn Kirkjugerði var með skipulagsdag föstudaginn 9 október sl.

Deildu

Dagurinn hófst á starfsmannafundi þar sem farið var yfir ýmis málefni sem viðkemur skólastarfinu. Þessir fundir eru mjög mikilvægir þar sem sjaldan gefst tækifæri til þess að funda með öllum kennurunum í einu.
Að starfsmannafundinum loknum fóru deildirnar og unnu að kennsluáætlun fyrir veturinn.
Þar sem leikskólinn er að innleiða Barnasáttmála sameinuðu þjóðanna og mun fá viðurkenningu sem Réttindaksóli UNICEF í vor, var haldið áfram að vinna með vinnustofur frá síðasta skipulagsdegi, en þá fékk starfsfólk leikskólans 6 tíma vinnustofu frá UNICEF.
Vinnan fólst að mestu í því að aldursskipta verkefnum og finna út verkefni og nálgun sem hentar hverju aldursstigi fyrir sig, hvaða leiðir er best að fara með tveggja ára nemendur og hvaða leið hentar best fyrir fjögurra ára nemendur.

Kirkjugerði er einnig tákn með tali (TMT) skóli.
Hver nemandi á sitt tákn og á þessum degi var einnig unnið með marvissa innleiðingu TMT. 
Við viljum vekja athygli á Tik Tok aðgangi skólans https://www.tiktok.com/@kirkjugerdi,  þar sem kennarar og nemendur setja inn tákn vikunnar.
Skólinn hefur fengið mikið lof og hrós fyrir þessa vinnu.
Eftir hádegi var haldið erindi og vinnustofur um ADHD og erfiða hegðun. Kennarar settu sig í spor nemenda með ADHD, atvik sem geta komið upp í skólastarfinu voru rædd og kennarar bjuggu til leikþætti um raunverulegar aðstæður í skólanum.