Fara í efni
28.09.2016 Fréttir

Viltu hafa áhrif?

 Í samræmi við stefnu bæjaryfirvalda um aukið íbúalýðræði er opið fyrir umsóknir, tilllögur og ábendingar varðandi fjárhagsáætlun ársins 2017.
Deildu
Fjall eyjar
 Erindi, ábendingar og tillögur

Þeir íbúar, félagasamtök og fyrirtæki í Vestmannaeyjum sem vilja koma með erindi, tillögur og/eða ábendingar er varða fjárhagsáætlun 2017 eru hvattir til að koma þeim til skila í síðasta lagi 10. okt. 2016 á netfangið margret@vestmannaeyjar.is eða með hefðbundnum pósti „Merkt: Vestmannaeyjabær Bárustíg 15, 900 Vestmannaeyjar b/t Margrétar Ingólfsdóttur“

 

Styrkir

Á sama hátt eru þeir einstaklingar og félagasamtök sem hafa hug á að sækja um styrki eða framlög vegna starfsemi ársins 2016 bent á að senda inn umsóknir til bæjaryfirvalda í siðasta lagi 10. okt. 2016 á netfangið margret@vestmannaeyjar.is eða með hefðbundnum pósti á heimilisfangið: Merkt: Vestmannaeyjabær Bárustíg 15, 900 Vestmannaeyjar b/t Margrétar Ingólfsdóttur“

Eyðublöð styrkumsókna má finna með því að smella á þessa slóð hér að neðan:   smartwebber.vestmannaeyjar.is/skrar/file/margret/viltu_hafa_ahrif-_umsoknareydublad.pdf

Skilyrði er að umsókn fylgi m.a. greinargerð sem skýrir verkefnið sem sótt erum styrk til, svo og síðasta skattframtal eða ársreikningur.

Áskilinn er réttur til að krefjast fyllri gagna, þyki þess þörf.