Fara í efni
30.09.2021 Fréttir

Atvinna í boði

Auglýst er eftir leikskólakennara/leiðbeinanda í tilfallandi afleysingar í Víkinni- 5 ára deild, GRV, fram að sumarleyfi leikskóla. Starfsmaður verður kallaður inn eftir þörfum og oft með stuttum fyrirvara.

Deildu

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni:

  • Vinna með börnum.
  • Almenn ummönnun barna.

Hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun æskileg.
  • Reynsla af vinnu með börnum æskileg.
  • Áhugi á vinnu með börnum nauðsynleg.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og samvinnu við annað fólk nauðsynleg.
  • Sjálfstæði, stundvísi og skipulögð vinnubrögð.

Nánari upplýsingar veitir Guðrún S. Þorsteinsdóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 488 2231 , eða í tölvupósti: gudrun@grv.is

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ/Drífanda eða Stavey.

Hvatning er til allra áhugasama einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr 150/2020.

Umsóknir berist til Guðrúnar S. Þorsteinsdóttur aðstoðarleikskólastjóra og þeim þarf að fylgja ferilskrá, hreint sakavottorð og afrit af prófskírteini/leyfisbréfi ef það á við.

Öllum umsóknum verður svarað að umsóknarfresti loknum

Umsóknarfrestur er til 13. október