Fara í efni
07.03.2013 Fréttir

Viðmiðunardagur kjörskrár vegna alþingiskosninga

 Laugardagurinn 23. mars er viðmiðunardagur kjörskrár vegna alþingiskosninga sem hafa verið auglýstar þann þann 27. apríl n.k. 
Deildu
 Á kjörskrá skal taka alla þá sem skráðir voru með lögheimili í ákveðnu sveitarfélagi samkvæmt íbúaskrár þjóðskrár fimm vikum fyrir kjördag, uppfylli þeir að öðru leyti skilyrði 1. mgr. 1. gr. um kosningalaga.

 

Þjóðskrá Íslands vill af þessu tilefni minna á nauðsyn þess að íbúaskráningin sé sem réttust. Flutningur á lögheimili á milli sveitarfélaga og innan sveitarfélags, sem á sér stað eftir 23. mars 2013 mun ekki hafa áhrif á útgefinn kjörskrárstofn. Þetta þýðir að tilkynningar um lögheimilisbreytingar þurfa að berast okkur í síðasta lagi 22. mars eigi þær breytingar að verða skráðar í þjóðskrá fyrir viðmiðunardag.