Fara í efni
29.05.2012 Fréttir

Viðmiðunardagur kjörskrár

Viðmiðunardagur kjörskrár vegna forsetakosninganna er 9. júní n.k.
Deildu
Á kjörskrá skal taka alla þá sem skráðir voru með lögheimili í ákveðnu sveitarfélagi samkvæmt íbúaskrár þjóðskrár þremur vikum fyrir kjördag, uppfylli þeir að öðru leyti skilyrði 1. mgr. 1. gr. um kosningalaga. Þjóðskrá Íslands vill af þessu tilefni minna á nauðsyn þess að íbúaskráningin sé sem réttust. Flutningur á lögheimili á milli sveitarfélaga og innan sveitarfélags, sem á sér stað eftir 9. júní 2012 mun ekki hafa áhrif á útgefinn kjörskrárstofn. Þetta þýðir að tilkynningar um lögheimilisbreytingar þurfa að berast okkur í síðasta lagi 8. júní eigi þær breytingar að verða skráðar í þjóðskrá fyrir 9. júní.  
 
Unnt er að ganga frá skráningu flutningstilkynningar rafrænt á vef Hagstofu www.skra.is eða líta við í Ráðhúsinu.