Fara í efni
28.04.2026 Fréttir

Viðbygging og framtíðaruppbygging við Íþróttamiðstöðina

Deildu

Töluverðar framkvæmdir eru nú framundan við Íþróttamiðstöðina en á dögunum var tekin ákvörðun um stækkun á bæði búningsaðstöðu og heilsurækt.

Þann 14. apríl sl. voru opnuð tilboð í nýja viðbyggingu. Á fundi framkvæmda- og hafnarráðs þann 17. apríl var samþykkt að ganga að tilboði lægstbjóðanda, Steina og Olla ehf., en áætlað er að framkvæmdum ljúki í maí 2028. Þessi viðbygging leysir meðal annars af hólmi eldri klefana sem eru notaðir í tengslum við íþróttakennslu og eru komnir vel til ára sinna. 

Einnig hefur verið auglýst eftir samstarfsaðila vegna uppbyggingar og reksturs heilsuræktar við íþróttamiðstöðina. Tilboð voru opnuð í lok mars og samþykkti bæjarráð að taka tilboði Lauga ehf.

Framtíðarsýnin tekur á sig mynd 

Á undanförnum (2019-2025) árum hefur verið unnið markvisst að framtíðarsýn fyrir Íþróttamiðstöðina í samráði við aðildarfélög héraðssambandsins, forstöðumenn, starfsfólk og ráðamenn sveitarfélagsins. Fyrsti áfangi þeirrar vinnu er að reisa nýja viðbyggingu fyrir búningsaðstöðu sem mun leysa af hólmi eldri klefa við gamla salinn (sal 1). Þegar nýju klefarnir verða teknir í notkun verður hafist handa við að rífa þá eldri og anddyrið stækkað til austurs.

Samkvæmt upprunalegri áætlun átti uppbygging heilsuræktar að koma í kjölfarið á þessum framkvæmdum. Tilkoma einkaaðila í verkefnið hefur hins vegar orðið til þess að þeirri framkvæmd hefur verið flýtt töluvert og undirbúningur fer fljótlega af stað.

Hér að neðan má sjá myndir sem sýna framtíðarútlit Íþróttamiðstöðvarinnar.

Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja : Framtíðarsýn - Hugmyndavinna (myndband)