Þekkingarsetur Vestmannaeyja hefur til að mynda staðist þau viðmið að skila ársreikningi til RSK síðastliðin þrjú ár, vera í lánshæfisflokki 1-3, rekstrarhagnaður (EBIT) hefur verið jákvæður þrjú ár í röð, ársniðurstaða hefur verið jákvæð þrjú ár í röð, eiginfjárhlutfall er 20% eða meira þrjú rekstrarár í röð, eignir hafa numið 80 milljónum eða meira þrjú ár í röð og fl.
Þekkingarsetur Vestmannaeyja ses er því á meðal 1,7% íslenskra fyrirtækja sem standast þær kröfur.
Á næstu misserum verða stigin stór skref í átt til frekari eflingar Þekkingarsetursins sem miðstöðvar þekkingar, fræða- og rannsóknastarfs í Vestmannaeyjum. Meðal helstu verkefna er að koma upp nýrri skrifstofu, kennslu og rannsóknaaðstöðu í Fiskiðjuhúsinu auk fjölþættrar útvíkkunar á klasasamstarfi við þekkingarstofnanir og fyrirtæki hér á landi sem erlendis.
Það er von og trú undirritaðra að styrkur Þekkingarseturs Vestmannaeyja eigi áfram eftir að verða Eyja samfélaginu til heilla.
Fyrir hönd Þekkingarseturs Vestmannaeyja
Páll Marvin Jónsson, framkvæmdarstjóri Þekkingarseturs Vestmannaeyja
Elliði Vignisson, formaður stjórnar Þekkingarseturs Vestmannaeyja