Fara í efni
22.10.2015 Fréttir

Vestmannaeyjar- viltu hafa áhrif?

Viljum minna á að í dag, fimmtudaginn 22.október er síðasti dagurinn til að skila inn erindum varðandi fjárhagsáætlun ársins 2016.
Deildu
 Erindi, ábendingar og tillögur

Þeir íbúar, félagasamtök og fyrirtæki í Vestmannaeyjum sem vilja koma með erindi, tillögur og/eða ábendingar er varða fjárhagsáætlun 2016 eru hvattir til að koma þeim til skila í síðasta lagi 22. okt. 2015 á netfangið margret@vestmannaeyjar.is eða með hefðbundnum pósti „Merkt: Erindi – Fjárhagsáætlun 2016, Ráðhúsinu, 900 Vestmannaeyjar b/t Margrétar Ingólfsdóttur“

 

Styrkir

Á sama hátt eru þeir einstaklingar og félagasamtök sem hafa hug á að sækja um styrki eða framlög vegna starfsemi ársins 2016 bent á að senda inn umsóknir til bæjaryfirvalda í siðasta lagi 22. okt. 2015 á netfangið margret@vestmannaeyjar.is eða með hefðbundnum pósti á heimilisfangið: Merkt: Styrkir – Fjárhagsáætlun 2016, Ráðhúsinu, 900 Vestmannaeyjar b/t Margrétar Ingólfsdóttur“

Eyðublöð styrkumsókna má finna á heimasíðu sveitarfélagsins http:// vestmannaeyjar.is/skrar/file/fjarhagsaaetlanir/eydublad.pdf

Skilyrði er að umsókn fylgi m.a. greinargerð sem skýrir verkefnið sem sótt erum styrk til, svo og síðasta skattframtal eða ársreikningur.

Áskilinn er réttur til að krefjast fyllri gagna, þyki þess þörf.

 

Elliði Vignisson

Bæjarstjóri