Vegna þess hversu sýningar á viðburði okkar hafa verið fjölsóttar hefur reynst nauðsynlegt að bæta við sjónvarpi og eru þau nú orðin þrjú, þannig að auðveldara verður að sjá "á skjáinn".
Kvikmyndirnar tóku þeir Loftur Guðmundsson, Sveinn Ársælsson, Friðrik Jesson, Guðjón Ólafsson, Ósvald Knudsen og fleiri.
Eins og fyrr mun Arnar Sigurmundsson greina nánar frá myndefninu og leiða umræður.
Sýningin ásamt yfirferð verður laugardaginn 31. janúar kl. 11 í Sagnheimum og lýkur um kl. 12.
