Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign. Skila skal tilboðum rafrænt fyrir kl. 14.00 þriðjudaginn 8. júní 2021 í fyrrnefndu útboðskerfi.
Leiðbeiningar varðandi TendSign útboðskerfið.
Helstu verkþættir eru:
- Rífa rafbúnaðarhús, taka upp malbik og steypta þekju.
- Leggja regnvatnslagnir, niðurföll, brunn, vatnslagnir og ídráttarrör fyrir rafmagn.
- Grófjafna yfirborð og þjappa, fínjafna undir steypta þekju og malbik 1900 m².
- Steypa undirstöður fyrir ljósamastur og spil.
- Slá upp mótum, járnbinda og steypa þekju, alls um 1100 m².
- Koma fyrir rafmagnskössum og vatnsbrunnum á bryggjunni.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. október 2021.
