Hlutafjáraukningin er liður í að ljúka fjármögnun rannsóknarvinnu sem fram fór á vegum verkefnisins í sumar.
Eyjagöng hafa óskað eftir því að núverandi hluthafar auki hlut sinn um 20% á sama gengi og áður, eða 1 krónu á hlut. Með þátttöku sinni undirstrikar Vestmannaeyjabær áframhaldandi stuðning við verkefnið og næstu skref í undirbúningi þess.
Bæjarstjórn samþykkti samhljóða viðauka til að mæta hlutafjáraukningunni.
Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri segir „Vestmannaeyjabær hefur frá upphafi lagt áherslu á að styðja við rannsóknarvinnuna til að traust gögn verði til Það er ánægjulegt að sjá þann góða árangur sem náðst hefur hjá Eyjagöngum í þessum fyrstu skrefum í verkefninu. Með áframhaldandi þátttöku styður Vestmannaeyjabær við að ljúka þeirri mikilvægu rannsóknarvinnu sem er forsenda þess að hægt sé að taka upplýstar ákvarðanir um framhald verkefnisins.“