Hver íbúð á sér afnotalóð. Lóðarstæðir og stærðir afnotalóða eru sýndar á deiliskipulagsuppdrætti og skilmálablöðum.
Gögn með umsókn:
Einstaklingum ber að leggja fram greiðslumat frá viðurkenndri fjármálastofnun á greiðslugetu sinni í húsnæði. Fyrirtæki skulu leggja fram staðfestingu viðskiptabanka á greiðslugetu sinni.
Til þess að umsókn teljist gild þarf umsækjandi að vera í skilum við bæjarsjóð.
Um auglýsingu og úthlutun lóða gilda vinnureglur um úthlutun lóða í Vestmannaeyjum nr. 131/2006.
Gjaldskrár, skipulags- og byggingaskilmálar og allar aðrar upplýsingar liggja frammi á skrifstofu umhverfis- og framkvæmdasviðs að Skildingavegi 5.
Áætlað er að lóðirnar verði byggingarhæfar í júlí. 2020.
Umsóknarfrestur er til og með 19. mars nk.
Sækja um lóð
• Sérskilmálar lóða
• Afstöðumynd deiliskipulags
• Greinargerð deiliskipulags
• Vinnureglur við úthlutun byggingarlóða
25. febrúar 2020
Umhverfis- og framkvæmdasvið
