Fara í efni
02.10.2014 Fréttir

Vestmannaeyjabær - þar sem hjartað slær

Viltu hafa áhrif?

Deildu
Í samræmi við aukna áherslu Vestmannaeyjabæjar á íbúalýðræði og aðgengi bæjarbúa að sjálfsögðum áhrifum hefur nú verið opnað fyrir ábendingar og styrkumsóknir er lúta að fjárhagsáætlunum.

                       

Erindi, ábendingar og tillögur

Þeir íbúar, félagasamtök og fyrirtæki í Vestmannaeyjum sem vilja koma með erindi, tillögur og/eða ábendingar er varða fjárhagsáætlun 2015 eru hvattir til að koma þeim til skila í síðasta lagi 14.okt. 2014 á netfangið fjarhagsaaetlun@vestmannaeyjar.is eða með hefðbundnum pósti á heimilisfangið:

 

Vestmannaeyjabær

Ráðhús Vestmannaeyja

Ráðhúströð

900 Vestmannaeyjum.

Merkt: Erindi – Fjárhagsáætlun 2015

Styrkir

Á sama hátt eru þeir einstaklingar og félagasamtök sem hafa hug á að sækja um styrki eða framlög vegna starfsemi ársins 2015 bent á að senda inn umsóknir til bæjaryfirvalda í siðasta lagi 14. okt. Á netfangið fjarhagsaaetlun@vestmannaeyjar.is eða með hefðbundnum pósti á heimilisfangið:

Vestmannaeyjabær

Ráðhús Vestmannaeyja

Ráðhúströð

900 Vestmannaeyjum.

Merkt: Styrkir – Fjárhagsáætlun 2015

Eyðublöð styrkumsókna má finna á heimasíðu sveitarfélagsins (Umsókn um styrk úr bæjarssjóði)

Skilyrði er að umsókn fylgi m.a. greinagerð sem skýrir verkefnið sem sótt erum styrk til, svo og síðasta skattframtal eða ársreikningur.

Áskilinn er réttur til að krefjast fyllri gagna, þyki þess þörf.

 

 

 

 

Elliði Vignisson

Bæjarstjóri