Fara í efni
31.05.2021 Fréttir

Verkefnið "Vestmannaeyjar, vettvangur sjávarlíftækni á Íslandi" hlýtur styrk úr Lóu-nýsköpunarstyrkjum fyrir landsbyggðina.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir nýsköpunarráðherra kynnti í dag um 29 verkefni sem fá úthlutun úr Lóu-nýsköpunarstyrkjum fyrir landsbyggðina. 

Deildu

Styrkirnir voru auglýstir í febrúar en alls bárust 236 umsóknir í Lóu. Í þessari fyrstu úthlutun fá verkefnin styrki sem nema rúmum 147 milljónum króna. Af þessum 29 verkefnum hlaut verkefnið "Vestmannaeyjar, vettvangur sjávarlíftækni á Íslandi" 10 milljón króna styrk sem var hæsta styrkupphæðin sem veitt var að þessu sinni.

Verkefnið miðar að því að leggja grunn að þeirri framtíðarsýn að í Vestmannaeyjum séu höfuðstöðvar sjávarlíftæknivettvangs Íslands.

Umsækjendur verkefnisins eru Þekkingasetur Vestmannaeyja, Rannsóknaþjónusta Vestmannaeyja, Langa og Vestmannaeyjabær. Verkefnastjóri verkefnisins er Dr. Hólmfríður Sveinsdóttir. Samstarfsaðiliar í verkefninu eru Dr. Ásta Dís Óladóttir og Dr. Margrét Þorsteinsdóttir frá Háskóla Íslands, Dr. Rannveig Björnsdóttir frjá Háskólanum á Akureyri, Ingibjörg Sigurðardóttir frá Háskólanum á Hólum, Fóðurverksmiðjan Laxá, Háskólinn í Bergen í Noregi og Arctic Mass og Viska símenntunarmiðstöð í Vestmannaeyjum.

Dr. Hólmfríður Sveinsdóttir segir að:

„Sjávarlíftækni er sé sú grein sem á eftir að spila lykilhlutverk í því að auka verðmætasköpun í sjávarútvegi til næstu 20 ára, þar sem hún mun gera okkur kleift að vinna verðmætari afurðir úr hliðarafurðum og vannýttum afurðum, t.d. slógi. Miðstöð sjávarlíftækni byggð á breiðum grundvelli eins og ætlunin að gera í verkefninu er ekki til á Íslandi. Vestmannaeyjar er kjörinn staður til að byggja upp miðstöð sjávarlíftækni þar sem mikil þekking á veiðum og vinnslu býr í samfélaginu. Einnig er mikill fjölbreytileiki í aflanum sem kemur að landi. Það er stutt á miðin og þekkingarsamfélagið í kringum sjávarútveg er öflugt.“

Vestmannaeyjabær fagnar þessum styrk sem skipti miklu máli fyrir framgang verkefnisins.