Fara í efni
12.05.2026 Fréttir

Útsýnisskálinn opnaður

Hluti listaverks Ólafs Elíassonar var opnaður í Vestmannaeyjum í dag – að viðstöddum m.a. listamanninum sjálfum og atvinnuvegaráðherra.

Deildu

Listaverkinu, sem hefur vinnuheitið Sjónarhorn Flakkarans (The Wanderers Perspective), má skipta í tvo hluta: annars vegar útsýnisskálann sem opnaður var í dag  - og hins vegar göngustíg sem lagður verður umhverfis gíginn í Eldfelli.

Göngustígurinn verður ekki aðeins órjúfanlegur hluti af listaverkinu heldur felur í sér vernd á viðkvæmri náttúru svæðisins og eykur öryggi ferðalanga sem þangað leggja leið sína. Meðal annars af þeirri ástæðu hlaut stígurinn hæsta styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða, sem atvinnuvegaráherra úthlutaði fyrir skömmu, eða um 107 milljónir króna. Verkefnið í heild er þar með fjármagnað að fullu.

Gert er ráð fyrir að framkvæmdir við stíginn hefjist innan skamms og verði lokið fyrir áramót. Þannig yrði listaverkið fullfrágengið í heild sinni fyrir 23. janúar næstkomandi þegar 54 ár verða liðin frá því að gosið hófst.