Útlagningarskipið Seven Navica var þar með laust og sigldi út frá Klettsvík. Lögninni var í kjölfarið fleytt yfir í Skansfjöru þar sem landtaka hófst.
Aðgerðin gekk mjög vel og var að fullu í samræmi við fyrirliggjandi skipulag og hönnun, en landtökunni lauk formlega rétt rúmlega sex í morgun. Næstu skref í verkinu eru að sanda yfir og loka skurðinum sem lögnin liggur í. Einnig verður hún tengd svo hægt sé að hefjast handa við þrýstiprófun.
Eins og áður hefur verið greint frá varð tjón á lögninni við útlagningu, en ákveðið var að klára verkið til að lágmarka frekara tjón allra aðila. Nú er beðið eftir formlegri lokaskýrslu um atvikið. Vestmannaeyjabær mun ekki tjá sig nánar eða veita frekari upplýsingar
varðandi tjónið fyrr en sú skýrsla liggur endanlega fyrir.





