Fara í efni
19.04.2006 Fréttir

Úthlutun úr Þróunarsjóði leikskóla 2006

Þróunarsjóður leikskóla starfar samkvæmt reglum nr. 163/2001 sem settar eru á grundvel
Deildu

Þróunarsjóður leikskóla starfar samkvæmt reglum nr. 163/2001 sem settar eru á grundvelli 5. gr. laga nr. 78/1994 um leikskóla. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að þróunarverkefnum í leikskólum með hliðsjón af aðalnámskrá leikskóla. Með þróunarverkefnum er átt við nýjungar, tilraunir og nýbreytni í leikskólastarfi.

Í janúar sl. var auglýst eftir umsóknum um styrki til þróunarverkefna á tveimur forgangssviðum:

A. Lýðræði í leikskólastarfi með sérstaka áherslu á jafnrétti.

B. Náttúruvísindi í leikskólum með sérstaka áherslu á tengsl við skapandi starf.

Auk þess var auglýst eftir almennum þróunarverkefnum.

Þriggja manna úthlutunarnefnd metur umsóknir og gerir tillögur til menntamálaráðherra um styrkveitingar. Í nefndinni eru fulltrúar frá Kennaraháskóla Íslands, Félagi leikskólakennara og menntamálaráðuneyti.Umsýsla með Þróunarsjóði leikskóla er í höndum ráðuneytisins og Rannsóknarstofnunar Kennaraháskóla Íslands.

Menntamálaráðherra hefur ákveðið, að tillögu úthlutunarnefndar, að veita styrki að upphæð alls 3,7 millj. kr. til samtals 13 verkefna.

Eftirtalin verkefni hljóta styrk úr Þróunarsjóði leikskóla skólaárið 2006-2007:

Verkefni

Styrkþegi

Upphæð

Aukin gæði náms - þróunarstarf í leikskólanum Tröllaborgum

Leikskólinn Tröllaborgir

150.000

Leikfélagar

Bæjarskrifstofur Garðabæjar

150.000

Fuglaveröld

Ólafur B. Ólafsson

150.000

Nám í gegnum íþróttir

Leikskólinn Lyngholt

200.000

Listalíf

Listasafn Íslands

200.000

Talnaskilningur barna í leikskóla

Leikskólinn Teigasel

250.000

Stærðfræðin í leik og starfi leikskólans

Félags- og skólaþjónustan Útey

250.000

Mannauður í margbreytileika

Leikskólinn Fellaborg

250.000

Líf og leikni

Leikskólinn Reynisholt

300.000

Ég og leikskólinn minn - Ferlimöppur til að skapa markvisst upplýsingaflæði milli skóla og heimilis

Leikskólinn Sólvellir

350.000

Náttúruvísindi í leikskólum

Leikskólinn Mánabrekka

400.000

Tónlist tengir kynslóðir

Vinagarður: Leikskóli KFUM & KFUK

500.000

Virðing og jákvæð samskipti

Leikskólinn Gefnarborg

550.000

Alls:

3.700.000

Af vef mrn.

Fræðslu- og menningarsvið Vestmannaeyjabæjar