Lagning almannavarnalagnar NSL4 til Vestmannaeyja hófst aðfaranótt miðvikudagsins 5. ágúst við Landeyjarhöfn.
Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyjabæjar samþykkti á 442 fundi sínum þann 28. júlí 2026 að gefið yrði út framkvæmdaleyfi fyrir lagningu almannavarnalagnar NSL4 innan lögsagnarumdæmis Vestmannaeyjabæjar, samkvæmt fyrirliggjandi drögum. Á 25. afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa var samþykkt að gefa út fyrirliggjandi framkvæmdaleyfi.
Framkvæmdaleyfið ásamt fylgigögnum og upplýsingum um málið má finna á Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar, mál nr. 921/2026
