Consensa, fyrir hönd Vestmannaeyjabæjar, óskar eftir tilboðum í framleiðslu og afhendingu máltíða fyrir eldri borgara Vestmannaeyjabæjar samkvæmt skilmálum útboðslýsingarinnar. Um er að ræða framleiðslu og afhendingu hádegisverðar heim til þeirra sem eiga rétt á heimsendum mat samkvæmt reglum sveitarfélagsins.
Nánari upplýsingar um útboðið má finna í útboðsgögnum sem eru aðgengileg í útboðskerfinu Tendsign. Hlekkur á útboðsgögn má finna hér.
Hafa skal í huga að auglýstir tilboðsfrestir geta tekið breytingum og eru allar slíkar breytingar eingöngu tilkynntar inn í útboðskerfinu og gildir sá tími sem þar er tiltekinn.
