Verkið fellst í að fjarlægja núverandi loftræsisamstæður og koma fyrir nýjum ásamt breytingum á stokkakerfi með öllu sem því fylgir og skal verkinu vera lokið eigi síðar en 1. september 2018.
Óskað er eftir tilboðum í verkið í heild sinni eins og fram kemur á uppdráttum og því er lýst í útboðs-og verklýsingu
Um er að ræða tvær loftræsisamstæður sem sjá annars vegar sjá um loftræsingu fyrir munageymslu og hins vegar fyrir bóka-og byggðasafn.
Útboðsgögn er hægt að panta hjá TPZ teiknistofu Kirkjuvegi 23 Vestmannaeyjum netfang tpz@teiknistofa.is frá og með þriðjudeginum 6. febrúar 2018 og verða send á tölvutæku formi til tilboðsgjafa.
Tilboðum skal skila til Umhverfis-og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar Skildingavegi 5 Vestmannaeyjum fyrir kl 13.45, þriðjudaginn 27. febrúar 2018 og verða opnuð þar kl 14.00 sama dag í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska.
Umhverfis-og framkvæmdasvið Vestmannaeyjabæjar