Verkið fellst í að grafa fyrir, byggja og fullgera viðbygginguna úr timbri jafnt að utan sem innan og skal verkinu vera lokið 1.maí-2018.
Óskað er eftir tilboðum í verkið í heild sinni eins og fram kemur á uppdráttum og því er lýst í útboðs-og verklýsingu
Heildarstærð viðbyggingarinnar verður 92,7m² á eini hæð.
Útboðsgögn er hægt að panta hjá TPZ teiknistofu Kirkjuvegi 23 Vestmannaeyjum netfang tpz@teiknistofa.is frá og með 27. júlí 2017 og verða send á tölvutæku formi til tilboðsgjafa.
Tilboðum skal skila til Umhverfis-og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar Skildingavegi 5 Vestmannaeyjum fyrir kl 13:45, þriðjudaginn 22. ágúst 2017. og verða opnuð þar kl 14:00 sama dag í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska
Umhverfis-og framkvæmdasvið Vestmannaeyjabæjar