Fara í efni
13.11.2020 Fréttir

Útboð á ljósleiðaravæðingu í dreifbýli Vestmannaeyjabæjar

Ljósleiðaravæðing dreifbýlis Vestmannaeyjabæjar

Deildu

EFLA verkfræðistofa óskar eftir tilboðum í lagningu ljósleiðararöra fyrir hönd Vestmannaeyjabæjar. Verklok eru eigi síðar en 1. apríl 2021.

Verkið felur í sér að grafa, draga í eða plægja niður ljósleiðararör frá dreifistöð kerfisins inn á heimili og fyrirtæki í dreifbýli Vestmannaeyjabæjar, setja niður tengiskápa, bora inntök í hús, ásamt frágangi lagnaleiðar.

Helstu magntölur eru:

- Plæging, gröftur og ídráttur blástursröra

fyrir stofn- og heimtaugastrengi 8 km

- Fjöldi götuskápa 14 stk

- Fjöldi inntaksboxa 27 stk

- Fjöldi dreifistöðva 1 stk

Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með mánudeginum 16. nóvember 2020. Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Kristinn Hauksson með tölvupósti, kristinn.hauksson@efla.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið útboðsgögnin send í tölvupósti.

Tilboðum skal skila á Verkfræðistofuna EFLU, Lynghálsi 4, 110 Reykjavík fyrir kl. 11:00 mánudaginn 30. nóvember 2020, en þá verða þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Vestmannaeyjabær