Höfundar námsefnisins eru Unnur Líf Ingadóttir Imsland og Snjólaug Árnadóttir. Þær eru menntaðir grunnskólakennarar með áralanga starfsreynslu og starfa í dag sem umsjónarkennarar á yngsta stigi. Árið 2019 hófu þær að útbúa stóran hluta af námsefni þeirra þar sem þeim fannst vanta námsefni sem höfðaði til nemendahóps þeirra. Þetta byrjaði allt með litlum hóp á Facebook sem vatt upp á sig og úr varð utfyrirbokina.is.
Skólar og einstaklingar geta gerst áskrifendur að námsefninu á vefsíðunni. Bókasafnið gekk skrefi lengra og lét prenta bækurnar í samstarfi við höfunda og eru þær til útláns á safninu. Íslandsbanki styrkti útgáfuna með myndarlegum hætti og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir þeirra framlag.
Við erum ótrúlega spennt fyrir þessari nýju viðbót á safnið og hvetjum við unga lesendur að kíkja við en sumarlesturinn er enn í fullum gangi.
Á myndinni má sjá Gígju Óskarsdóttir, Unni Líf Imsland en hún er einn af höfundum bókanna, Drífu Þöll Arnardóttir og Kára Bjarnason

