Á fundinum var farið yfir hvernig dýpkun hafnarinnar hefur gengið síðustu ár í samanburði við nýliðinn vetur, auk þess sem kynntar voru frumniðurstöður úr rannsóknarverkefni danskra sérfræðinga hjá DHI A/S (Danska straumfræðistofunni).
Vinna DHI A/S hófst haustið 2024 með það að markmiði að finna leiðir til að auka nýtingu Landeyjahafnar. Fyrsta skref verkefnisins var að setja upp sandburðarlíkan sem byggir á 15 ára gagnasafni. Líkanið hefur nú verið fullkvarðað og hefur verið nýtt til að greina mögulegar breytingar á höfninni og umhverfi hennar.
Á fundinum voru kynntar frumniðurstöður þessara rannsókna ásamt hugmyndum Vegagerðarinnar um næstu skref í þróun og uppbyggingu hafnarinnar.
DHI A/S hefur unnið að rannsóknum víða á Íslandi í samstarfi við Vegagerðina, bæði í Landeyjahöfn og á öðrum stöðum, og býr yfir víðtækri reynslu og þekkingu á sviði straumfræði og strandsvæða.
Upptöku af fundinum má finna hér fyrir neðan: