Ábendingar bárust frá starfsfólki í Hamarsskóla til tæknideildar í október um að skoða þyrfti kennslustofur skólans á vesturgangi, á neðri hæð, þar sem starfsfólk þar hefur fundið fyrir óútskýrðum einkennum frá öndunarvegi.
Þegar slíkar ábendingar berast varðandi fasteignir sveitarfélagsins er brugðist við um leið í þeim tilgangi að finna út hvað veldur.
Fengnir voru sérfræðingar frá Disact til að framkvæma ýmsar athuganir í Hamarsskóla en þær gáfu þó ekki augljósa skýringu fyrir þeim einkennum sem starfsfólk finnur fyrir.
Ákveðið var að fara samt í ýmsar aðgerðir skv. ráðleggingum s.s að endurnýja gólfefni og setja loftskiptitæki í glugga, með von um að þær hefðu jákvæð áhrif.
Við síðustu athugun sem gerð var í október kom síðan í ljós að töluvert af ryki í kennslustofunum, og var það skoðað betur í kjölfarið.
Líklegt er að ryk safnist fyrir í loftaplötum og gæti það verið skýringin á þeim einkennum sem starfsfólkið hefur fundið fyrir enda getur ryk valdið verulegum óþægindum hjá einstaklingum sem eru næmir fyrir slíku.
Aðili sem gerði síðustu mælingu í október benti á mikilvægi þess að loftaplöturnar væru þrifnar a.m.k. tvisvar á ári en það hefur ekki verið hluti af framkvæmdarþáttum áður.
Búið er að þrífa plöturnar og verða þær sprautumálaðar í jólafríinu, með von um að það dragi úr rykmynduninni.
Besti kosturinn í stöðunni væri að skipta loftaplötunum út en það er flókið verk, þar sem þær voru settar í steypumótin þegar platan milli hæða var steypt.
Því er til skoðunnar á næsta ári að setja upp kerfisloft til að klæða yfir plöturnar og fyrirbyggja þannig rykmyndun.
Á næsta ári er einnig stefnt á að drena í kringum skólann og skoða lausn á loftræstingu fyrir vesturgang.