Keppnin var mjög jöfn og voru dómarar lengi að komast að niðurstöðu.
Að lokum tókst það og 1. - 3. sæti hrepptu þær Bríet Björk Hafþórsdóttir, Caritas Rós Tinnudóttir og Kolbrá Njálsdóttir. Í 4. sæti lenti Guðbjörg Karlsdóttir og er hún varamaður lesarana.
Við í GRV óskum þeim og öllum lesurunum innilega til hamingju með frábæran árangur. Í apríl munu krakkarnir keppa fyrir hönd GRV í upplestri við nokkra skóla á Suðurlandi en keppnin er haldin í Vík í Mýrdal að þessu sinni.
13.03.2026
Fréttir
Upplestrarkeppni
Röddin, undankeppni upplestrarkeppni 7. bekkjar GRV fór fram í Tónlistarskóla Vestmannaeyja í gær

