Enn er beðið eftir lokaskýrslu SUSEA7 vegna tjónsins og liggja því ekki fyrir nýjar upplýsingar frá útlagnaraðila að svo stöddu.
Samhliða þeirri vinnu hefur verið unnið að undirbúningi þrýstiprófana á lögninni í samráði við NOV, framleiðanda lagnarinnar. Framkvæmdalýsing hefur verið lögð fyrir og samþykkt af NOV og er stefnt að því að hefja þrýstiprófanir í þessari viku, verði allar forsendur fyrir hendi. Prófunin verður framkvæmd með stigvaxandi þrýstiaukningu samkvæmt fyrirfram skilgreindu verklagi.
Markmið prófananna er að afla skýrari upplýsinga um ástand lagnarinnar og hvernig hún bregst við þegar hún er sett undir álag. Tryggingafélögum hefur verið gerð grein fyrir fyrirhuguðum aðgerðum og þau eru upplýst um framgang málsins.
Vestmannaeyjabær mun birta frekari upplýsingar um leið og niðurstöður lokaskýrslu og fyrirhugaðra prófana liggja fyrir.
