Fara í efni
11.06.2026 Fréttir

Unnið að mótun atvinnustefnu fyrir Vestmannaeyjar

Vestmannaeyjabær vinnur nú að mótun atvinnustefnu fyrir Vestmannaeyjar. Markmið verkefnisins er að móta skýra framtíðarsýn fyrir atvinnulíf í bænum og styrkja samkeppnishæfni og fjölbreytni atvinnugreina. 

Deildu

Sem liður í vinnunni mun bærinn standa fyrir samráðsfundum með fulltrúum atvinnulífsins. Markmið þeirra er að skapa vettvang fyrir opið samtal og safna sjónarmiðum og hugmyndum sem nýtast við mótun atvinnustefnunnar. Á fundunum verður farið yfir stöðu atvinnumála í Vestmannaeyjum og rætt um helstu tækifæri og áskoranir til framtíðar, ásamt styrkleikum og veikleikum atvinnulífsins.

Til fyrstu fundanna verður boðað núna í júní og svo seinni partinn í ágúst. Fulltrúar fyrirtækja munu fá boð á næstu dögum. 
Vestmannaeyjabær hvetur atvinnulífið til að taka virkan þátt í þessari mikilvægu stefnumótunarvinnu