Helstu verkefni:
- Umsjón og eftirlit með fasteignum Vestmannaeyjabæjar.
- Létt viðhald og minniháttar framkvæmdir á húsnæði og opnum svæðum.
- Flöggun á lögbundnum og formlegum fánadögum.
- Önnur tilfallandi verkefni sem framkvæmdastjórar bæjarins óska eftir.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Iðnmenntun og/eða reynsla af iðnaðarstörfum eða húsvörslu.
- Óskað er eftir laghentum og úrræðagóðum einstaklingi.
- Samstarfshæfni, jákvæni og lipurð í mannlegum samskiptum.
- Bílpróf er skilyrði.
Nánari upplýsingar um starfið:
Umsjónarmaður fasteigna hefur aðsetur í Ráðhúsi Vestmannaeyja. Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs.
Vinnutími er frá 08:00 til 17:00 virka daga og nauðsynlegt er að bregðast við aðkallandi verkefnum utan þess tíma ef þörf er á. Nánari upplýsingar um starfið veitir Brynjar Ólafsson, framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs í tölvupósti: brynjar@vestmannaeyjar.is
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Vestmannaeyjabæjar (STAVEY) eða Drífanda og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Hvatning er til allra áhugasama einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr 150/2020.
Umsóknum ásamt menntunar- og starfsferilskrám skal skila til Bæjarskrifstofa Vestmannaeyja, Ráðhúsinu við Ráðhúströð, 900 Vestmannaeyjum og merkja „Umsjón með fasteignum Vestmannaeyjabæjar“. Einnig er hægt að skila umsóknum með rafrænum hætti í gegnum heimasíðu Vestmannaeyjabæjar eða á netfangið postur@vestmannaeyjar.is
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin
Umsóknarfrestur er til og með 25. maí nk.
