Dýpkunarskipið hefur hafið vinnu við dýpkun á innsiglingarrennu hafnarinnar en til stendur að fjarlægja um 50.000 rúmmetra af efni og breikka rennuna eins og meðfylgjandi mynd sýnir. Þegar dýpkun verður lokið verður farið í verðkönnun á styttingu garðsins og svo hafist handa við að stytta garðinn um allt að 40 metra.
Ekki nóg með að verið sé loksins að hefja verkefnið stytting Hörgaeyrargarðs að þá losar dýpkunarskipið efnið utan við Eiðið sem er stórt skref í verkefninu hafnaraðstaða utan við Eiðið. Skipið losar farminn þar sem nýr garður er teiknaður og er því hægt að segja að uppbygging sé hafin.



