Laugardaginn 29. Ágúst frá kl. 10-12 verður haldið Tómstundahlaðborð í sal Íþróttamiðstöðvarinnar, þar sem íbúum gefst kostur á að kynna sér fjölbreytt tómstunda og íþróttastarf.
Markmið Tómstundahlaðborðsins er að félög, stofnanir og aðilar sem bjóða upp á skipulagt tómstundastarf komi saman á einum stað svo íbúar geti kynnt sér það fjölbreytta starf sem stendur til boða í Vestmannaeyjum. Gestir geta fengið upplýsingar um námskeið, æfingar, félagsstarf og önnur verkefni sem henta ólíkum áhugasviðum og aldri.
Viðburðurinn er liður í því að auðvelda fjölskyldum að velja starf fyrir veturinn og styrkja þátttöku íbúa í uppbyggilegu tómstundastarfi. Þátttaka í skipulögðu frístundastarfi getur haft jákvæð áhrif á félagsfærni, sjálfstraust og almenna vellíðan fólks.
Þau félög, samtök eða aðilar sem bjóða upp á skipulagt tómstunda-, íþrótta- eða æskulýðsstarf og telja sig eiga heima á Tómstundahlaðborðinu, en ekki hefur verið haft samband við, eru hvött til að hafa samband við Eyrúnu, verkefnastjóra æskulýðs- og tómstundamála, með að senda póst á eyrunharalds@vestmannaeyjar.is
Skipuleggjendur hvetja alla íbúa til að mæta og nýta tækifærið til að skoða það sem er í boði áður en vetrarstarfið hefst af fullum krafti.
