
Laugardaginn 26. september kl. 10:00 - 12:00 verður haldið Tómstundahlaðborð í sal Íþróttamiðstöðvarinnar, þar sem fjölbreytt félög, samtök og starfsemi kynna það sem þau hafa upp á að bjóða.
Þátttaka í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi hefur margvísleg jákvæð áhrif fyrir einstaklinga og gefst þarna frábært tækifæri til að kynnast ólíkum tómstundum og íþróttum fyrir börn, ungmenni og fullorðna, hvort sem þú ert að leita að nýju áhugamáli, langar að prófa eitthvað nýtt eða vilt einfaldlega sjá hvað er í boði hér í Vestmannaeyjum.
Þau sem verða á staðnum eru:
- 12 sporin - andlegt ferðalag
- Féló
- Frístund Hamarsskóli
- Hvítasunnukirkjan
- ÍBV íþróttafélag
- Karlakór Vestmannaeyja
- KFUM&K
- Kirkjukór Landakirkju
- Krabbavörn
- Kvenfélag Landakirkju
- Kvenfélagið Líkn
- Kvennakór Vestmannaeyja
- Listvinafélag Vestmannaeyja
- Litla lúðrasveitin
- Lúðrasveit Vestmannaeyja
- Pílufélag Vestmannaeyja
- Sundfélag Vestmannaeyja
- Tónlistarskóli Vestmannaeyja
- Víkingafélagið Vilborg
- Villikettir
- Viska
- Aglow
- Björgunarfélag Vestmannaeyja
- Aikido - japönsk sjálfsvarnarlist
- Leikfélag Vestmannaeyja
- Janus - heilsuefling
- Einhugur (félag einhverfra)
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Rán fimleikafélag
Hlaðborðið er ætlað öllum aldurshópum, endilega kíktu við á laugardaginn og kynntu þér fjölbreytt tómstunda- og íþróttastarf í Vestmannaeyjum!
(Myndir frá 2025)
