Fara í efni
04.05.2026 Fréttir

Tólf miljónir til Sagnheima úr Safnasjóði

Logi Einarsson, menningaráðherra, hefur úthlutað styrkjum úr Safnasjóði fyrir árið 2026 að fenginni umsögn Safnaráðs.

Deildu

Úthlutunarboð Safnaráðs fór fram í Myndasal Þjóðminjasafns Íslands fyrr í þessum mánuði og þar gerði Arna Kristín Einarsdóttir, skrifstofustjóri menningar og skapandi greina í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu grein fyrir úthlutun ársins. 

Alls var úthlutað 131 styrk að heildarupphæð 182,7 milljónum króna.

Sagnheimar hlutu samtals 12 milljónir króna í styrki úr sjóðnum. Þar af fékk safnið í fyrsta sinn svokallaðan öndvegisstyrk að upphæð 8 milljónir króna, en aðeins átta söfn á landinu fengu slíkan styrk í ár.

Öndvegisstyrkurinn er veittur til tveggja ára og mun nýtast við undirbúning nýrrar sýningar um Tyrkjaránið en á næsta ári verða liðin 400 ár frá þeim mikla atburði.

Auk þess fékk safnið tvo eins árs styrki. Annars vegar til skráningar safnmuna í gagnagrunninn Sarp og hins vegar til skipulagningar á varðveislurými safnsins við Tangagötu.