Aðfaranótt sunnudagsins 9. ágúst varð atvik hjá Subsea 7 við framkvæmdir við útlagningu á NSL-4 almannavarnalögn, með þeim afleiðingum að skemmdir urðu á lögninni og var útlagning stöðvuð.
Strax í kjölfarið var ráðist í greiningar- og úttektarvinnu á vettvangi til að meta stöðuna í samvinnu við hlutaðeigandi sérfræðinga. Sú vinna hefur staðið yfir síðustu daga og er nú beðið eftir formlegri skýrslu frá Subsea 7 sem mun staðfesta bæði nákvæmar orsakir tjónsins og umfang þess.
Vestmannaeyjabær mun veita nánari upplýsingar um framhaldið þegar niðurstöður skýrslunnar liggja fyrir.
