Fara í efni
16.10.2026 Tilkynningar

Tímabundin lokun á sundlaug 21. og 22. október – Útisvæði áfram opið

Vegna útskipta á flæðinema í jöfnunarkari verður sundlaugin lokuð miðvikudaginn 21. október og fimmtudaginn 22. október.

Deildu
Sund sundlaug rennibraut

Vinnan hefst á miðvikudagsmorgun og ef framkvæmdir ganga vel stefnum við á að opna laugina aftur seinni partinn á fimmtudag, en annars er gert ráð fyrir tveggja daga lokun.

Athugið að heitu pottarnir og útisvæðið verður opið að venju á meðan á framkvæmdum stendur.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda gestum okkar.