Þjónustuíbúðir fyrir fatlað fólk
Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk II
Hlutverk Þjónustuíbúðanna er að veita íbúum stuðning og leiðsögn í öllu er varðar persónulega hagi og heimilisrekstur svo sem þrifnað, þvott, matreiðslu, innkaup og annað sem tilfellur. Einnig skal þeim veittur stuðningur í tómstundastarfi og fá fylgd s.s. til lækna, í klippingu o.s.frv.
Starfshlutfall: 60%
Vinnufyrirkomulag: Unnin er vaktavinna eftir vaktaplani allan sólarhringinn, virka daga, á kvöldin og um helgar
Ráðningartímabil: Þarf að geta hafið störf í síðasta lagi 14. maí
Helstu verkefni:
· Starfsmaður sér um almenna umönnun skjólstæðinga vegna líkamlegra og félagslegra þarfa eftir því sem við á. Nálægð við þjónustuþega er mikil.
· Önnur verkefni eru heimilisstörf s.s. þvottar, þrif, matargerð og annað sem tilfellur.
· Starfsmaður fylgir skjólstæðingum vegna ýmissa erinda utan heimilis s.s. til lækna, tannlækna, í klippingu, fatakaup, tómstundir, íþróttir, kirkja o.fl. og aðstoðar þá eftir þörfum.
· Starfsmenn þurfa að kynnast íbúum vel til að geta lesið í þeirra langanir og þarfir og geta áttað sig á ef eitthvað bjátar á hjá íbúanum sem hann á erfitt með að koma í orð sjálfur.
· Starfið getur einnig falist í meðferðarvinnu vegna hegðunarvanda íbúa og krefst þess að starfsmaður sé ávallt athugull og vakandi fyrir breytingum á atferli íbúa og líðan hans.
Hæfniskröfur:
· Kostur er að hafa reynslu og áhuga á að vinna með fötluðu fólki.
· Góð samskiptafærni og þjónustulund.
· Frumkvæði og samviskusemi.
· Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri og hafa hreint sakavottorð.
Laun skv. kjarasamningi : Stavey/Drífandi
Upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Ósk Þórðardóttir forstöðukona í síma 488-2550/866-9480. ingibjorgosk@vestmannaeyjar.is
Leitað er að jákvæðum, duglegum og samviskusömum einstaklingum. Vestmannaeyjabær vill stuðla að jafnrétti kynja og hvetur því alla óháð kyni til að sækja um laus störf.
Umsóknir skulu berast rafrænt í gegnum íbúagátt Vestmannaeyjabæjar. Einstaklingar sem ekki hafa rafræn skilríki geta fengið leiðbeiningar í þjónustuveri í síma 488 2000.
Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til og með 10. maí. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningar hefur verið tekin.
