Nú er tækifæri til að tilnefna kennara, kennarahópa, leiðbeinendur og starfsfólk í leikskólum, Grunnskóla Vestmannaeyja, Tónlistarskóla og Frístund.
Hverjir geta tilnefnt?
Allir! Foreldrar, ömmur og afar, nemendur, stofnanir, samtök, starfsfólk Vestmannaeyjabæjar, þ.m.t. starfsfólk í leikskólum, grunnskóla, Tónlistarskóla og Frístund.
Fræðsluráð velur þrjú framúrskarandi verkefni sem verða öðrum til eftirbreytni.
Lokadagur til að skila inn ábendingum er 17. mars 2026
Eyðublað fyrir tilnefningu er inn á Íbúagáttinni (veljið umsóknir – Fræðslumál)
