Fara í efni
13.03.2006 Fréttir

Tillaga að deiliskipulagi fyrir Miðstræti 20. í Vestmannaeyjum

Bæjarráð Vestmannaeyja samþykkti á fundi sínum þann 27. feb. 2006. að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Miðstræti 20 í Vestmannaeyjum í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum. Tillagan felst
Deildu

Bæjarráð Vestmannaeyja samþykkti á fundi sínum þann 27. feb. 2006. að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Miðstræti 20 í Vestmannaeyjum í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum.

Tillagan felst í meginatriðum í því að á lóðinni er gert ráð fyrir ca. 400m 2 byggingu fyrir verslunar- og þjónustustarfsemi á einni hæð á 1700 m 2 lóð Miðstrætis 20.

Tillagan verður til sýnis hjá umhverfis- og framkvæmdasviði Vestmannaeyjabæjar að Tangagötu 1, 2. hæð og á vefsíðu Vestmannaeyjabæjar www.vestmannaeyjar.is, frá 10. mars 2006 - 21. apríl 2006. Nánari upplýsingar veitir skipulags-og byggingarfulltrúi Vestmannaeyja.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera skriflegar athugasemdir við tillöguna sem skulu hafa borist Umhverfis- og framkvæmdasviði Vestmannaeyjabæjar Tangagötu 1, eigi síðar 21. apríl 2006. Þeir sem ekki gera athugasemd við tillöguna teljast samþykkir henni.

Kort af svæðinu

Vestmannaeyjum, 7. mars 2006.
Umhverfis- og framkvæmdasvið Vestmannaeyjabæjar