Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti þann 13. október 2026 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi Íþróttasvæðis við Hástein vegna uppbyggingar líkamsræktaraðstöðu við norðvestur hluta íþróttamiðstöðvar og niðurrifi eldri klefa skv. 1. mgr. 43. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010. Tillaga að breyttu deiliskipulagi er auglýst skv. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Tillagan felur í sér nýjan byggingarreit á tveimur hæðum fyrir líkamsrækt við norðvestur hluta íþróttamiðstöðvar, niðurrif eldri klefa og nýjum tveggja hæða byggingarreit við inngang, sbr. meðfylgjandi deiliskipulagsuppdrætti. Hámarksbyggingarmagn byggingarreits fyrir líkamsræktaraðstöðu er 950m2 á tveimur hæðum. Niðurrif eldri klefa, alls 663 m2, skapar rými fyrir rúmgott dvalarsvæði framan við inngang og nýjan byggingarreit fyrir inngang íþróttahúss, að hámarki 680 m2 á tveim hæðum.
Skipulagsbreytingin bætir til muna aðstöðu til líkamsræktar á Íþróttasvæði við Hástein og er í samræmi við Aðalskipulag Vestmannaeyja 2015-2035. Framkvæmdin mun raska hrauni og dvalarsvæði við inngang íþróttamiðstöðvar Vestmannaeyja, en gert er ráð fyrri nýjum dvalarsvæðum og áhersla verður lögð á góðan umhverfisfrágang að framkvæmdum loknum.
Skipulagsgögn verða til sýnis í Ráðhúsi Vestmannaeyja að Kirkjuvegi 50, á vefsíðu sveitarfélagsins og á Skipulagsgátt HMS (Mál nr. 1190/2026) ábendingum og athugasemdum við tillöguna þarf að skila skriflega eigi síðar en 25. nóvember 2026 í gegnum Skipulagsgátt HMS.


