Vestmannaeyjabær hefur ráðið Sigurberg Sveinsson í starf tómstunda-, íþrótta- og forvarnarfulltrúa.
Að teknu tilliti til menntunar, fjölbreyttrar starfs- og stjórnunarreynslu, reynslu og þekkingar á íþróttastarfi, leiðtogahæfni, samskipta- og samstarfshæfni, frammistöðu í viðtali og umsagna er það niðurstaða heildarmats Vestmannaeyjabæjar að Sigurbergur Sveinsson sé talinn hæfastur umsækjenda til að gegna starfi tómstunda-, íþrótta- og forvarnafulltrúa Vestmannaeyjabæjar.
Sérstaklega er horft til þess að samspil fagmenntunar, reynslu úr íþróttum og stjórnun, hæfni til að leiða umbóta- og þróunarstarf, góðrar samskiptafærni og framtíðarsýnar falli vel að þeim fjölþættu stjórnunar-, þróunar- og samstarfsverkefnum sem starfinu fylgja.
Vestmannaeyjabær óskar Sigurbergi velfarnaðar í starfi og hlakkar til áframhaldandi uppbyggingar og þróunar á sviði tómstunda-, íþrótta- og forvarnamála í sveitarfélaginu.
