
Pysjutímabilið er í fullum gangi í Vestmannaeyjum og næstu daga má búast við að sjá fjölda barna á röltinu um bæinn, oft langt fram á kvöld, í leit að pysjum.
Þegar myrkrið skellur á getur verið erfitt að sjá börnin, sérstaklega þegar þau eru að hlaupa eftir pysjum eða fara skyndilega yfir götur. Við viljum því minna alla ökumenn á að aka hægt og sýna sérstaka aðgát á þessum tímum.
Förum varlega og hjálpumst að við að tryggja að allir komist öruggir heim eftir pysjuveiðarnar.