Fara í efni
19.03.2020 Fréttir

Tilkynning frá Sóla

Ákveðið var í gær, í samráði við umdæmislækni sóttvarna, aðgerðastjórn og rakningarteymi, að loka Sóla tímabundið þar sem starfskona á leikskólanum hafði greinst með kórónaveirusýkingu.

Deildu

Var þessi ákvörðun tekin í því skyni að hindra mögulega útbreiðslu smits. Rakningarteymið hefur nú unnið úr upplýsingum og haft hefur verið samband við starfskonur Sóla og foreldra þeirra barna sem þurfa að fara í 14 daga sóttkví frá því að mögulegt smit gæti hafa átt sér stað. Samkvæmt niðurstöðum rakningarteymis fara 27 af 29 starfskonum Sóla í sóttkví og nemendur af einum kjarna. Leikskólinn er því lokaður til og með 26. mars nk.

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri

Helga Björk Ólafsdóttir, skólastýra Sóla