Þýsk sjónvarpsstöð leitar að fjölskyldu í Vestmannaeyjum sem væri til í að taka í fóstur tvo þýska unglinga. Unglingarnir myndu lifa og starfa með fjölskyldunni í eina viku sem yrði svo gert skil í þáttaröð sem sýnd verður síðar. Fyrirhugaðar tökur hefjast 14. apríl en áhugasamir geta haft samband við Kristínu Jóhannsdóttur í Ráðhúsi Vestmannaeyja eða sent póst á netfangið kristinj@vestmannaeyjar.is
Þegar er búið að taka upp svipaða þætti í öðrum löndum, m.a. Kanada, Namibíu, Sviss, Ghana og Bandaríkjunum en enskukunnátta er skilyrði fyrir þátttökunni.