Ingibjörg Sigurjónsdóttir, Ingibjörg Ósk Þórðardóttir og Jóna Þorgerður Helgadóttir áttu allar 10 ára starfsafmæli á árinu og héldu þær upp á tímamótin þann 2. október.
Þær hafa allar starfað í Kjarnanum í áratug og eru þar með þær sem hafa starfað lengst allra þeirra sem nú eru starfandi í Kjarnanum. Á þessum tíu árum hafa þær lagt sitt af mörkum til starfsins og samfélagsins með ómetanlegum hætti.
Við óskum Ingibjörgu, Ingibjörgu Ósk og Jónu Þorgerði innilega til hamingju með áfangann og þökkum þeim fyrir þeirra góða starf og mikilvæga framlag í Kjarnanum undanfarin tíu ár.
Til hamingju með 10 ára starfsafmælið!

