Fara í efni
08.11.2010 Fréttir

Þrettándinn - álfa- og tröllatíð

Góðar hugmyndir og innlegg í dagskrá vel þegnar
 
Komin er nokkurra ára hefð fyrir því að halda þrettándagleði Vestmannaeyja um helgi. Þetta hefur gefist vel og er hátíðin farin að lokka aukin fjölda gesta til Eyja til ánægju og hagsbóta fyrir hátíðina og samfélagið allt. Með samgöngum um Landeyjahöfn gefast enn á ný aukin tækifæri.
 
Nk. þrettándagleði verður haldin föstudaginn 7. janúar 2011. 
 
Deildu
Til þess að nýta þau sóknarfæri sem þessu fylgja hefur Vestmannaeyjabær ásamt ÍBV íþróttafélagi stofnað til samstarfs við grasrótarhreyfingu hagsmunaaðila með það fyrir augum að gera þrettándahelgina að veglegri bæjarhátíð, sem stendur alla helgina 7. – 9. janúar. Hátíð undir nafninu Þrettándinn í Eyjum – álfa og tröllatíð.
 
Undirbúningur er nú hafin og ýmsar hugmyndir á lofti s.s. fjölskylduhátíð í Íþróttamiðstöðinni, tröllamatseðlar og tröllatilboð í verslunum og á veitingastöðum bæjarins, sögustundir um álfa og tröll, grímuball, dansleikur, tónleikar og skemmtanir. Höfuð áhersla verður lögð á uppbyggjandi fjölskyldu- og Eyjagleði með þátttöku allra þeirra hagsmunaaðila sem áhuga hafa á aðkomu.
 
Fyrirtæki og einstaklingar, sem áhuga hafa á því að koma að dagskránni með einum eða öðrum hætti eru hvattir til að hafa samband við Vestmannaeyjabæ. postur@vestmannaeyjar.is.
 
Þá eru hagsmunaaðilar hvattir til að koma á undirbúningsfund stýrihóps mánudaginn 16. nóvember kl. 13.00 í Ráðhúsi Vestmannaeyja.