Þórarinn Björn lauk skrifstofuskóla MSS og stundaði nám við viðskipta- og hagfræðideild Háskólabrúar Keilis. Þá hefur hann vinnuvélaréttindi og meirapróf.
Þórarinn Björn hefur farsæla reynslu af stjórnun og rekstri með starfsmannahaldi. Hann hefur stýrt útibúi Samskipa í Vestmannaeyjum frá árinu 2021. Þar á undan starfaði hann sem yfirverkstjóri hjá Airport Associates 2016-2020 og verkstjóri hjá Aviator Noregi 2014-2016. Í störfum sínum hefur hann, auk stjórnunar og reksturs með starfsmannahaldi, öðlast fjölbreytta og víðtæka reynslu af stjórnun verkefna og framkvæmda, sem og komið að skipulagi og áætlanagerð í rekstri. Þórarinn Björn hefur góða almenna tölvukunnáttu auk reynslu af launa- og viðveruskráningarkerfum.
